EAS
LÍKAMI FYRIR LÍFIĐ

HJÁLPARGÖGN

Hér getur þú nálgast þjálfunar- og næringarskýrslur, æfingarkennslu og skýrslur til að mæla árangur þinn sem auðvelt er að prenta út.

SVONA BYRJAR ÞÚ

SKRIFAÐU OKKUR

Smelltu hér til að lesa bréf þátttakenda 2010

EAS Líkami fyrir Lífið: Bréf þátttakenda í áskorun 2010

Við hvetjum þátttakendur til að deila reynslu sinni í Líkami fyrir Lífið með því að senda okkur tölvupóst á eas@eas.is

 
 

Jæja þá er að líða að lokum þessa 3 mánaða átaks og má segja að árangurinn sé æðislegur.

Ég hafði nú ekki mikið að missa til að byrja með, var ekki „feit“, „þybbin“ né „þétt“ heldur var ég bara með fitu á óæskilegum stöðum t.d. maganum, lærunum, „hliðarspik“ ofl sem ég var alls ekki sátt við en svoleiðis fylgir víst þegar maður eignast barn.

Mér leið hrikalega með sjálfa mig sem bitnaði á flestum í kringum mig. Ég var þung í skapinu og bara frekar leið þar sem ég hef alltaf litið svo rosalega vel út, verið grönn og flott og aldrei farið upp fyrir 58 kíló fyrr en ég varð ólétt svo það var mikið sjokk að vera föst þar fyrir ofan. Kannski svolítið „lúxusvandamál“ en vandamálin eru bara misjöfn hjá fólki.

Ég og minn tilvonandi eiginmaður ákváðum í fyrra að við ætluðum að gifta okkur í júlí 2010 en vegna veikinda í fjölskyldunni ákváðum við að flýta því um 2 mánuði (þetta var ákveðið fyrir 2 vikum (aðeins 7 vikum fyrir nýjan væntanlegan brúðkaupsdag)) og þessvegna þurfti ég að setja allt í fyrsta gír og drífa mig að komast í gott form.

Í upphafi átaks LFL var ég 61,5 kíló og 88 cm yfir magann og 30,8% fita.
Nú er ég 58 kíló og 80 cm yfir magann og ég býst við að fitan sé dottin all svakalega niður miðað við hvernig ég lít út núna.

Miðað við þetta er ég búin að missa 5,7% af upphaflegri þyngd og 10% af magaummáli og ég er alveg súper hress og kát með það. Enn er þó 1 ½ vika í lok átaksins og bíð ég spennt eftir því að sjá loka árangur.

Ég hef þó ekki miklar vonir um að vinna vinninginn (þó það hefði verið gaman og skemmtileg verðlaun fyrir þennan árangur og æðislegu lífstílsbreytingu) þar sem ég er viss um að það séu fleiri hér sem hafa misst margfalt meira, en það sem ég fæ út úr þessu er svo ótrúlega mikil vellíðan.. það er allt svo ótrúlega einfalt og skemmtilegt núna. Ég vakna kl 5:45 á hverjum morgni og hendist í ræktina með bros á vör og mér finnst þetta vera æðislegt líf og mun klárlega halda því áfram eftir að þessu átaki lýkur. Dagurinn líður hratt og vel og lífið er bara svo ótrúlega skemmtilegt! Ég hef ekki lyst á neinu óhollu og mataræðið mitt er alveg 100%! Ég hef komið mínu mataræði yfir á manninn minn og son okkar og hefur það gengið alveg æðislega vel og allir mjög sáttir við þessar breytingar.

Ég stakk uppá því í vinnunni í byrjun árs að það væri sniðugt að koma af stað átaki. Vel var tekið í þá tillögu fór starfsmannafélagið strax í að koma átakinu af stað núna 15 febrúar sl. Við fengum þjálfara til liðs með okkur sem vigtaði og mældi alla og hefur þetta almennt séð gengið vel hjá fólki. Okkur var líka skipt í lið (einnig er einstaklingskeppni) og erum við sem erum saman í liði dugleg að ýta hvoru öðru áfram sem gerir þetta rosalega skemmtilegt.

Það er svo gaman að lífinu núna og get ég sko bara þakkað sjálfri mér og manninum mínum fyrir það... það gerist ekkert nema að maður hafi aðeins fyrir því og þá er það sko þess virði.
Ég er farin að geta hneppt „mjónu“ buxunum mínum án þess að það komi fita uppúr og það er það skemmtilegasta, þ.e. að sjá muninn á fötunum.

Nú er eftirvæntingin eftir brúðkaupinu mínu 1 maí alveg gríðarleg og ekki skemmir þessi flotti kroppur fyrir... ég hlakka bara til að „þurfa“ að láta minnka kjólinn minn ennþá meira.. hehehe

Takk kærlega fyrir mig og ég vona að öllum hinum í þessu átaki sé að ganga eins vel og mér.

Skrifað 26. mars af Thelmu.

Sæl öll sömul. Þetta líf.. úff ég veit ekki hvar ég á að byrja. Mér finnst það svo merkilegt hvað svona auðveldir hlutir eins og að borða reglulega og hreyfa sig geta veitt manni mikla gleði. Úthald mitt í öllu, þá meina ég öllu, hefur svo stór aukist að það mætti halda að einhverskonar persónubreyting hafi átt sér stað. Ég hleyp nánast eins og vindurinn, í fyrra bréfi mínu var ég e-ð að væla hvað það væri leiðinlegt, iss þetta er ekkert mál. Mesta breytngin á mér er að þrjóstan mín er að beyja í rétta átt. Í stað þess að heimta að allt sé hreint og börnin góð 24/7. Þrjóstan fer frekar í að hafa matinn hollan, lyfta einu sinni enn í hverri lyftingu, hlaupa aðeins lengra en seinast. Þetta er nákvæmlega það sem ég þurfti. Láta mata mig frá A-Ö. Segja mér hvernig hvert einasta smáatriði á að vera. Núna er mér nokk sama þó svo það sé ekki allt glansandi heima og krakkarnir hoppa útúm allt. Það kemur einhvernvegin af sjálfum sér. Ég er líka farin að sjá það betur og betur að ef ég í jafnvægi þá eru allir aðrir á heimilinu glaðari. Eins merkilegt og það nú er.

Þegar ég skráði mig þá hugsaði ég að það kæmi ekki annað til greina en að vinna þetta. Núna er mér alveg sama. Það væri bara svo gott að einhver sem er búin að finna jafnvægið og vellíðanina ynni.
 
Ég stoppaði í rúmar 3 vikur. Ég var orðin svakalega þreytt en helt samt áfram eins og hestur. 6 vikna mælingin kom mjög vel út, allt saman gengur svo mega vel á þessu heimili. Ég vona bara að fleiri séu að upplifa það sama og ég. Gangi ykkur öllum svakalega vel.

Skrifað 15. mars af Láru.

 Bætt heilsa og betra líf er alltaf jákvætt og það er svo gaman að lesa bréfin frá öllum sem eru að taka þátt. Sjálf hef ég stundað líkamsrækt og þjálfað hana mjög lengi eða í 12 ár og hef í tvígang tekið mig þannig á að ég skeri mig vel niður í fitu. Hef alveg óskaplega gaman að því að pæla í mat og næringu og hreyfingu. Ég notaði LFL lyftingarnar með hlaupum fyrstu 6 vikurnar og gekk að mér finnst mjög vel,  2,4 kg farin og 4% fita skv mælingargræju frá EAS.

Ég er ekkert langt frá því sem ég vil vera en samt er ég svo sátt í dag. Þá bara að hugsa í hvert sinn sem einhver býður mér snúð eða bjór að langa ekki í það vegna þess að ég er að vinna í heilsunni þessa dagana. Hef samt ekkert á móti því að fá mér annað slagið eitthvað gotterí en mín reynsla hefur sýnt mér það að best er að taka þessu alvarlega meðan á því stendur. Kíló eru mörgum erfið og langar mig að minna þá sem kannski ekki hafa pælt í þvi dags daglega hvað fólk lætur ofan í sig að vera þó glöð með þann breytta lífsstíl að vera farin að huga að því,  vegna þess við sjáum ekki hvernig við lítum út að innan. Ég er núna í viku 8 og ætla að vera hroðalega dugleg síðustu vikurnar. 

Skrifað 14. mars af Svanhvít.

Við hjónin skráðum okkur og erum á þriðju viku og gengur vel. Við erum búin að fara sex daga vikunnar í ræktina og tökum einn dag í frí. Við pössum vel mataræðið og notum EAS drykki og próteinstangir milli mála. Það eru 1,5 kg farið hjá mér og 2kg farið hjá manninum mínum. Mér finnst þetta ganga pínu hægt en góðir hlutir gerast hægt.
 
Við erum hvað mest ánægð með að gera þetta saman og hafa mikla orku börnin eru glöð með heilsusamlegra mataræði og öllum líður vel :) Við settum okkur markmið og ætlum að reyna að ná þeim.
 
Skrifað 3. febrúar af hjónum.

Ég skráði mig í von um að ná að koma mér í form. Hef aldrei stundað neinar æfingar nokkurn tíman, er 47 ára. Árangurinn hefur ekki látið standa á sér, fólk er alltaf að spyrja hvað ég sé að gera. Ein manneskja sagðist bara sjá mig grennast, eins og hún orðaði það. Mataræðið er skipulagt og inni í því er Myoplex Orginal í hádeginu. Stundum hyrna milli mála. CLA-pro og DynamX alla daga og oft einn Precision Burner á dag. Stöku orku stöng líka.

Borðað skipulega sex sinnum á dag og tek eftir að þegar maður borðar skipulega hollan og góðan mat, þá er ekki nein sérstök þörf á nammidegi. Æfi sex daga vikunar. Heilsan og sjálfsmatið allt á uppleið og ég trúi að þessi lífstíll sé kominn til að vera.

Skrifað 28. febrúar af karlkyns þátttakanda.

Ég vil byrja á því að segja hvað það er frábært að lesa hve mörgum gengur svona frábærlega, enda er þetta snilldar áskorun. Samt sem áður vildi ég að ég hefði sömu sögu að segja. Mér gengur þó rosalega vel með matarræðið og þjálfunina (enda hef ég gert þetta áður, þ.e. passað upp á matarræðið og stundað ræktina í sirka ár).. ég hef grandskoðað heimasíðuna og sankað að mér öllum þeim upplýsingum sem ég mögulega get til bæði til að fullvissa mig um að það sem ég kann sé ég að gera rétt og að sjálfsögðu til að læra eitthvað nýtt eins og loftháðu lausnina.. Það sem ég hef þurft að hafa mest fyrir er að bæta við tveimur máltíðum á dag til að fara upp í 6 máltíðir, en það var sko vel þess virði,  því ég er orkumeiri og á auðveldara með að vakna á morgnanna.
 
En þar fyrir utan virðist ég einfaldlega vera stopp, ég finn engan og sé engan mun á mér, og nú þegar 6 vikna mælingin nálgast óð fluga (ég byrjaði 25.jan) er ég ansi hrædd um að ég eigi ekki eftir að sjá neina breytingu..
Ég er um 80kg og var 35,6% þegar ég var mæld í byrjun.. ég er mjög hávaxin eða 182cm svo 80kg er svo sum ekki svo mikið og þessi 35.6% eru sko ekki augljós, enda fékk ég pínu sjokk þegar sú tala kom upp.. Ég stefni á að fara í 77kg og undir 24% það eru mín heildarmarkmið, en í þessari áskorun þarf ég svosum ekki að missa nein kíló.. en ég vil bara fara undir 30% og bæta verulega við vöðvamassa.

En málið er.. ég er ekki vön að klára ekki það sem ég byrja á, en ef að enginn munur sést á fyrir og eftir mynd í lokin og ég hef ekki misst eins mikið og ég var að vona þá er ég ekkert ægilega spennt fyrir því að skila inn leiðarvísinum.. ég er kannski að hugsa of langt fram í tíman, margt getur gerst á 6 vikum, en þetta er mér mjög ofarlega í huga þessa dagana.
 
Ég er samt ekki á því að hætta þó svo enginn árangur verði sjáanlegur í lok áskoruninnar.. ég mun halda áfram og ná mínum markmiðum.

Skrifað 02. mars af kvenkyns þátttakanda.

Það er ótrúlegt hvað fitan getur komið aftan að manni... í orðsins fyllstu merkingu. Þegar ég sá auglýsingu frá ykkur í EAS fann ég um leið að nú var komið kærkomið tækifæri til að losa sig við aukakílóin, sem eitt af öðru höfðu hlaðið sér utan á kroppinn. Ég held að akkúrat þarna hafi mér fundist nóg komið og tími kominn til að fjarlægja þessi aukakíló.
 
Ég gæti vel að mataræðinu, á mér einn nammidag og stunda ræktina 6 sinnum í viku. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Ég finn það á fötunum mínum og einnig sé ég glitta í vöðva sem ég var búin að gleyma að gætu verið þarna. Á mánudögum finn ég fyrir gamalkunnri löngun í sætindi, sérstaklega ef ég hef borðað mikið á nammideginum sem er á laugardögum. En ég læt mig hafa það, veit að löngunin gengur yfir og hvað ég verð roggin með mig þegar ég hef staðist freistinguna.
 
Ég er þakklát fyrir þetta frábæra framtak hjá ykkur í EAS.

Skrifað 28. febrúar 2010 af Hörpu.

Ég hafði varla stigið á vigt síðan í upphafsmælingunni 25. janúar, en rafhlöðurnar kláruðust í vigtinni minni :P  Svo var forvitnin orðin svo yfirgengileg að ég splæsti í ný battarý fyrir vigtina og ég get enn ekki ráðið mér fyrir kæti yfir tölunni sem ég sá.  Ég hafði vel fundið fyrir árangrinum og mér líður ótrúlega vel, finnst ég ekki einusinni vera að neita mér um neitt sem ég sakna.  Hugarfarið þessa dagana er líka það að ég sé fullkomin, ekki vegna þess að mínum besta mögulega árangri sé þegar náð, heldur vegna þess að ég er að gera eitthvað, eitthvað sem stuðlar að heilbrigðum líkama og sál.  Ég get ekki beðið eftir því að fara í millimælinguna.

Skrifað 26. febrúar 2010 af kvenkyns þátttakanda.

Mig langaði bara svona að skrifa eins og eitt bréf á meðan á þessu átaki mínu stendur.
 
Í byrjun átaks var ég 61,5 kíló sem var nú ekkert svo mikið, en magasvæðið var búið að pirra mig rosalega mikið eftir meðgönguna mína.  Magaummálið var 88 cm og þegar ég fór í fitumælingu (11/12 janúar) var fituprósentan 30,8% (það var Geir Gunnar sem mældi mig).
 
Ég tók mataræðið strax í gegn og skrifaði matardagbók og skráði einnig niður æfingarnar mínar. Ég fór frekar mikið út að hlaupa, í brennslu í ræktinni ásamt lyftingum og svo í fitness box í hnefaleikastöðinni.
 
Vigtin hrundi nú ekkert niður í draumatöluna strax eins og ég var að vonast eftir heldur fór þetta að mjakast smátt og smátt í rétta átt. Eins og er er ég 59,5 kíló (var reyndar 60,4 í 6 vikna fitumælingunni) og maginn er 85 cm og fituprósentan er 22% ! Ég fór til míns einkaþjálfara (sem hefur alltaf mælt mig fyrir utan fyrsta skiptið í þessu átaki) og mun hann sjá líka um lokamælinguna.
 
Mér finnst þetta nú heldur ótrúlegt að ég hafi misst svona mörg % af fitu á þessum stutta tíma þannig að ég vil draga aðra hvora mælinguna í efa.. en það kemur í ljós í næstu mælingu hvort seinni mælingin hafi verið rétt... kannski er ég bara að standa mig svona rosalega vel? :) Hver veit?
 
Markmiðið er að komast í c.a. 58 kg í lok átaks og þá á ég stutt í land að draumatölunni 56/57 kg fyrir brúðkaupið mitt sem verður í júlí.
 
Það sem ég finn þó er að ég er orkumeiri, lífsglaðari, með betra sjálfstraust og yfir höfuð bara miklu ánægðari með sjálfa mig. Ég er stolt af mínum árangri þó hann verði kannski ekki til þess að ég vinni þessi flottu verðlaun.. mín verðlaun verða bara flottur líkami og heilbrigð sál.

Skrifað 22. febrúar 2010 af Thelmu.

Það er það sem að átakið Líkami fyrir lífið er að gefa mér. Ég horfi í kringum mig og sé miklu fleiri ný tækifæri til að breyta lífsstíl mínum. Þetta er eins og að vakna til lífsins aftur. Nýtt tækifæri og nú má ekki gefa eftir neinu því að lífið er núna, hamingjan er í núinu ! Ég er reyni að taka 3 erfiðar æfingar í viku og 3 léttari. Aukalega reyni ég að ganga alltaf í hádeginu virku dagana og gefur það mér mjög mikið. Ég er alltaf að skoða betur og betur úrvalið af æfingum og íþróttum sem að ég get gert eins og allir aðrir því að hér áður áleit ég að ég gæti ekki gert alla þessar íþróttir sem að í boði eru. Ég ætla að vera dugleg að prufa eitthvað nýtt og halda ferskleikanum góðum og passa mig á að verða ekki leið.

Baráttukveðjur og óska ég öllum öðrum góðs gengis í átakinu sínu.

Skrifað 12. febrúar 2010 af Elsu.

Ég verð nú bara að segja eins og er að þetta prógram fór fram úr mínum björtustu vonum, ég ákvað að fara í mælingu á 3ja vikna fresti til að halda mér betur við efni. Það var eitt stykki glaður gaur sem gekk út úr mælingu í gær, 4 kíló farin á þremur vikum og 4cm af ummáli maga og 2cm af brjósti. það er strax sjáanlegur munur á mér og skrokkurinn allur orðinn stæltari. Til að mynda hefur ummál upphandlegsvöðva aukist um 1cm og magavöðvarnir eru allir að koma til.
 
Kosturinn við líkama fyrir lífið er sá hversu einfalt það er, ég mæti í ræktina sex sinnum í viku, alltaf á morgnana, það hefur komið mikili reglu á líf mitt, sem var áður ansi óreglulegt. Nú sofna ég alltaf á svipuðum tíma og vakna snemma og mæti svo ferskur í skólann eftir æfingu, við það kem ég meiru í verk og það verður meira úr deginum. Áður fyrr þá vakti ég fram eftir og mæti seint eða illa í skólann og stundaði hann með hálfum huga.
 
Mataræðið hefur einnig gjörbreyst, ég borða 5-6 máltíðir á dag og hef þær fjölbreyttar, fæ mér alltaf boost eða myoplex deluxe eftir æfingar, smá kaffi um tíu, og borða svo góðan hádegismat, létt kaffi aftur um 3-4 og svo léttan kvöldmat á milli 6-7 svo fæ ég mér kannski einhverja ávexti um kvöldið. þetta er gjörbylting frá því þegar ég fékk mér 1-2 stórar máltíðir á dag, mishollar, eða öllu heldur misóhollar.

Skrifað 11. febrúar af EJ

Ég er alveg á fullu LFL prógramminu og er að klára viku 4 en ég verð bara að segja að ég er ekki alveg að trúa því hvað þetta er fljótt að líða, mæling tvö eftir 2 vikur :S Jæks! ;)
 
Ég verð nú bara að viðurkenna að mér er búið að líða eins og í rússíbana fyrstu 3 vikurnar af prógramminu þar sem æfingarnar eru af allt öðrum toga en því sem ég er vön. Ég er búin að hafa smá efa með loftháðu þjálfunina og fæ mikið af neikvæðum kommentun þegar ég lýsi fyrir fólki hvernig ég æfi á morgnana. Í lok viku 2 var ég rétt búin að ná því út á hvað þessi þjálfun gekk og var búin að finna minn riðma í þessu, en þá fóru kommentin að hellast yfir mig um að brennsla er brennsla og þú verður að æfa lengur en 20 mín. til að brenna einhverju. Það munaði svo litlu að ég henti öllu frá mér og fór í mitt gamla form og "flutti" í ræktina aftur. En sem betur fer á ég líka góða að sem ég gat pústað á og ákvað að trúa og treysta því sem þetta prógramm gengur út á og hélt mér við þetta. Núna þegar komið er að lok viku 4 er ég búin að standa mig að því að "formúlan" mín að loftháðu æfingunum er ekki nógu erfið og er ég búin að vera að þyngja hana í hvert skipti sem ég geri hana síðustu 2 vikurnar. Það sem mér finnst svo æðislegt með þessa æfingu er að það er svo auðvelt að fylgjast með framförum og ég kemst alltaf betur og betur að því að ég get meira en ég held, þarf bara aðeins að fara yfir comfort zonið mitt og ég fer á flug :)
 
Mig langar samt aðeins að forvitnast varðandi þessar æfingar; hvort borgar það sig að hækka erfiðleikastigið á æfingunni og halda sig við 20 mín. eða á maður að bæta við tímann á henni og bæta við "einu setti". ... ég mundi halda að erfiðleika stigið væri málið en það er bara dálítið erfitt að kenna gömlum hundi að setjast og hausinn á mér fer alltaf í gamla mótið - því lengur sem þú heldur út á æfingu því meira brennir þú :S
 
Ég var svo að velta fyrir mér varðandi fitu %; er til einhver formúla eða eitthvað sem getur hjálpað manni að sjá hvað er raunhæft að geta losað sig við mörg % á 4 vikum?
 
Takk fyrir að vera til staðar og það er æðislegt að fá smá hvatningarpóst frá ykkur svona öðru hverju :)

Skrifað 06. febrúar af Guðrúnu

Ég er núna á viku 2 og gengur alveg frábærlega.  Það er alveg magnað hvað ég hef miklu meiri orku yfir daginn eftir að ég fór að borða hollan og góðan mat reglulega.  Allt hefur gengið vel núna framan af og verð ég að segja að ég bíð alltaf spenntur eftir því að fara í ræktina á daginn.  Hef bæði verið að fara á morgnanna og síðdegis í ræktina.  Einnig er ég að lesa bókina Líkami fyrir lífið og gagnast sú lesning mjög vel og hvet ég alla til að verða sér út um þessa bók, þetta er biblían á mínu heimili þessa dagana og verður það sennilegast um ókomna tíð. Næstu vikur verða skemmtilegar og án efa árangursríkar. En jæja best að hætta þessu blaðri og koma mér í ræktina, gangi ykkur öllum vel.

Skrifað 04. febrúar 2010 af Gunnari.

Mér gengur all bærilega, hreyfi mig mikið fer í líkamsrækt 3x í viku sund 3 - 4 sinnum í viku hestbak 2 - 3 sinnum í viku fyrir utan allar gönguferðir. Einnig held ég vel utan um allt sem ég læt ofan í mig og drekk mikið vatn aldrei minna en 2 lítra á dag.

Skrifað 03. febrúar 2010 af Sesselju.

Það gengur rosalega vel hjá mér bæði með matarræðið og svo einnig æfingarnar. Ég borða 6 máltíðar á dag, tek Thermo Dynamx tvær töflur 2x á dag, einnig nota ég Myoplex DIET. Þegar ég byrjaði fyrir 3 vikum var ég 65.1kg og 24.2 fituprósentu en í dag er ég 65.1kg en 22.1 fitu% ...þannig ég er búin að missa 1.4kg af hreinni fitu :)
 
Ef það er eitthvað sem heldur manni gangandi þá er það svona niðurstaða fyrir utan orkuna sem ég er stút full af :)

Skrifað 02. febrúar af Agnesi.

Ég er að byrja á viku 2 í dag og allt gengur mjög vel. Ég fann fyrir mikilli þreytu í síðustu viku, enda mikil breyting að æfa næstum alla daga vikunar. En þetta er breyting sem mér finnst frábær, þótt ég hafi fundið fyrir mikilli þreytu fann ég líka fyrir mikilli orku, skrítið en samt er það þannig.  Ég skipulegg mig vel með matinn og versla inn á sunnudögum, þá er ég 100% á því að klikka ekki. Ég á alltaf til hollt og gott fæði til í ísskápnum og hangi því ekki á skáphurðum til að finna eitthvað að borða, ég veit hvað ég á að borða á hverjum degi. Ég geng núna alltaf með Myoplex stöng í töskunni minni, mér finnst rosalega gott að fá mér svona hálfa 30 mín áður en ég fer á æfingu. Ég hlakka mikið til að sjá hvernig þessi vika verður og hvernig ég mun bæta mig frá degi til dags. Ég er alveg ótrúlega stolt af mér fyrir að hafa skráð mig í þetta og ég ætla alla leið....alla leið á toppinn.
 
Þegar ég skráði mig í Líkami fyrir lífið kom ég til ykkar og talaði þar við unga konu. En ég verð að segja að ég fékk svo frábærar móttökur frá henni og þeim stúlkum sem voru á staðnum að það var alveg til fyrirmyndar. Þið eruð greinilega með frábært fólk sem starfar hjá ykkur, sem gerir þetta auðveldara fyrir okkur að vera með.

Skrifað 01. febrúar 2010 af kvenkyns þátttakanda.

Jæja nú er ég að hefja viku 3 í þessu yndislega 12 vikna átaki til betra lífs. Ég finn svo um munar hvað þetta er að gera mér svakalega gott. Það rennur af mér lýsið og ég finn hvað þolið tekur hressilega við sér. Eftir eina viku í algjöru hámarki þurfti ég strax að hækka hraðann á hlaupabrettinu. Nú stefni ég ótrauð á besta form lífs míns og grenningin -sem ég sóttist eftir fyrst- verður bónus sem fylgir með.

Þetta prógram heldur mér alveg á mottunni, ég fer í ræktina á hverjum degi sama hvað. Ég er sjómannsfrú með 3 lítil börn en finn tíma á hverjum degi og það er yndislegt. Fyrir hverja viku geri ég mjög stíft og planað matarprógram sem ég held mig við útí  rauðan dauðann. Það hafa komið nokkrir dagar þar sem ég finn að ef ég hefði ekki matarplanið að þá hefði ég dottið í ruglið sem ég var í fyrir Líkama fyrir lífið.

Fólk í kringum mig er farið að minnast á það hvað ég líti vel út, í ræktinni er fólk að spyrjast útí það hvað ég sé að gera og sýnir þessu mikinn áhuga. Maðurinn minn og öll fjölskyldan er ótrúlega stolt af mér og hann er alveg búinn að snarbreytast í viðhorfi til mín og finnst ég ótrúlega dugleg. Og það besta er að mér finnst ég sjálf svo ótrúlega dugleg og ég er bara rétt að byrja! ennþá 10 vikur eftir... ég get ekki beðið eftir að vakna á morgnana og takast á við næsta dag.

Frídagurinn hjá mér var eitthvað sem ég kveið... áður þegar ég hef tekið mig á þá hef ég yfirleitt tekið forskot á frídaginn á föstudagskvöldi og svo 3. í nammidegi á sunnudegi.. og það hefur tekið mig vikuna að rétta mig af. En ég ákvað að plana frídaginn í þaula eins og hina dagana, og frídagurinn byrjar ekki fyrr en í kaffitímanum. Þetta kerfi svínvirkar fyrir mig.
Áfram við!

Skrifað 01. febrúar 2010 af nafnlausri konu að vestan :)

Hæ þetta gengur bara vel. En fyrstu vikuna þegar líkaminn er að venjast við að borða 6 sinnum á dag fann ég mikið fyrir hungri á milli mála en í dag finn ég ekkert fyrir því. Líður rosalega vel og finn ekki smá mikið breytingar á líkamanum, þó að það séu aðeins 2 vikur eru liðnar. Og æfingin hún er mjög skemmtileg og gaman að þjálfa 6 sinnum í viku, ég er öll að styrkjast. Hlakka mikið til að halda áfram og sjá hvernig árangurinn verður í lokinn

Skrifað 01. febrúar 2010 af Gíslný.

Mig langar bara að segja frá því hvernig ég finn fyrir breytingu á mér. Ég er að byrja fjórðu vikuna og finn fyrir miklu meiri orku og endist daginn miklu meira og er duglegri upp á morgnan. Einnig finn ég breytingar á líkama. Er að reyna að léttast um 10kg.

Það eru samt tveir ókostir hjá mér, ég vinn vakta vinnu og því æfingarnar ekki alltaf á sama tíma, og ég get ekki keypt EAS vörur á Sigló. Mér finnst gott að nota próteinstangir á milli mála. Ég redda mér þó með ávöxtum og hrökkbrauði. Með bestu kveðju og takk fyrir stuðninginn.

Skrifað 01. febrúar 2010 af Kristínu.

Ég vil byrja á að hrósa ykkur fyrir að bjóða uppá þessa keppni. Ég sjálf er mest í keppni við sjálfa mig. Ég hef prufað margar aðferðir við að reyna að léttast en aldrei haldið neitt út þar sem alltaf hefur e-ð ekki verið að virka. Þetta program er að virka fullkomlega fyrir mig ég verð ekki svöng á milli mála, langar ekki í sætindi þar sem blóðsykurinn heldur jafnvægi, hef góðar hægðir en það er eitt að því sem mér finnst vera lykilatriði, helling af orku og tala nú ekki um að ég er búin að missa 4,5 kg og er ekkert að fara stoppa alveg strax. Ég setti mér markmið að missa 500 gr á viku en ég hef misst mun meira. Ég er ánægð á meðan það fer ekki undir 500 gr. Ég borða 6x á dag og þá passa ég að borða bæði kolvetni og prótein. Ávextir og/eða grænmeti eru með í hverri máltíð. Tvö vatnsglös með hverri máltíð og svo er ég alltaf með vatnsbrúsa á mér hvert sem ég fer.
 
Ef það er eitthvað sem mér finnst leiðinlegt eða erfitt þá er það loftháða þjálfunin en það er bara e-ð í hausnum á mér. Ég er svo glöð og ánægð þegar ég hef lokið þjálfuninni. Ég er ánægðust með að fá loksins aðhald á mataræðið. Ég geri alltaf matarplan á sunnudögum og maðurinn minn er líka mjög ánægður með með fjölbreytnina og hvað ég hef miklu meiri unun á að elda. Svo er aldrei verið að kíta um hvað á að vera í matinn því það er á matarplaninu sem hangir á ískapnum :)
 
Jæja þetta eru smá stikk orð frá mér, læt kannski heyra í mér aftur.

Skrifað sunnudaginn 31. janúar 2010 af Láru.

Mér langaði bara að segja það að ákvörðunin um að taka þátt í þessu er sú besta sem ég hef á ævi minni tekið. Við erum tvær vinkonur hérna á Egilsstöðum og púlum saman á morgnanna. Okkur hefur aldrei liðið betur og getum ekki ímyndað okkur að byrja daginn öðruvísi. Erum strax farnar að sjá mikinn árangur og getum ekki beðið eftir lokasprettinum. Mér líður hreinlega eins og nýrri manneskju, full af orku og hamingjan alveg í hámarki!
 
Ég var að byrja aftur í skóla og gengur alveg rosa vel. Einbeitingin og áhugasemin hafa aukist heilan helling.
 
Fyndið samt að ég var búin að ákveða að byrja í þessu í desember þegar ég rakst á þessa bók upp í hillu hjá mömmu, síðan sá ég ykkur auglýsa keppnina og það að þetta sé keppni hvetur mann alveg ennþá lengra!
 
Takk takk og vona að öllum hinum gangi jafn vel og okkur.

Skrifað laugardaginn 30. janúar 2010 af Ásdísi

 

Mér líður æðislega vel þessar fyrstu vikur. Ég er að borða 6x á dag, hollan mat og hreyfa mig 1x-2x á hverjum degi. Ég er mun hressari yfir daginn, þarf ekki að leggja mig og hef fulla orku í að sinna öllu því sem ég þarf að gera. Ég er strax orðin jákvæðari og finn fyrir breytingum á líkama og sál!
 
Þetta er æðislega gaman og svo er maður svo stoltur af sjálfum sér að standa við sett plan! Þetta er frábært!

Skrifað föstudaginn 29. janúar 2010 af Herdísi

 

Til baka

VÖRURNAR SEM HJÁLPA ÞÉR

 

Vörurnar sem skipta máli!
Allt um vörurnar sem þátttakendur nota til þess að breyta líkama sínum á vef EAS

BÆKURNAR

EINKAÞJÁLFUN

Vantar þig sérhæfa einkaþjálfara sem hjálpa þér við Líkami fyrir Lífið áskorunina? EAS mælir með þessum einkaþjálfurum á heilsuræktarstöðvum landsins.

Finna þjálfara

Skrá Afskrá


EAS Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ +354 555-2866

Staðhæfingar um vörur á vefsíðunni hafa hvorki verið staðfestar af lyftjaeftirliti Bandaríkjanna né Íslands. þessum vörum er ekki ætlað að greina, lækna eða hindra sjúkdóma af nokkru tagi. Vörurnar eru samþykktar til sölu af lyfjaeftirliti Íslands.