Kæru þátttakendur í Líkami fyrir lífið! Það er frábær tilfinning að reyna á líkamann og hafa stjórn á því sem maður borðar. Velja hollan og góðan mat, hreyfa sig reglulega og hugsa vel um sjálfan sig. Það verður ekki hjá því komist að finna fyrir aukinni orku. Þeir sem borða 5-6 máltíðir á dag, finna ekki fyrir hungri og finnst þeir hafa meiri orku. Það leiðir svo aftur til þess að maður gefur meira af sjálfum sér í samskiptum við aðra og nærist því betur, bæði andlega og líkamlega. Það eru gömul sannindi og ný að því meira sem maður gefur af sér í samskiptum við aðra, því meira fær maður til baka. Ýmsar verslanir eru með tilboð á EAS vörum þessa dagana; svo sem Krónan með Myoplex máltíðarbréf og Lyfja Lágmúla með Myoplex Lite stangir. Fjarðarkaup og Heilsuver á Suðurlandsbraut eru með gott úrval af EAS vörum og í EAS verslun okkar í Suðurhrauni 12a má fá upplýsingar um vörurnar, átakið og allt því tengt. Sendið okkur endilega línu um það sem þið eruð að ganga í gegnum í tengslum við átakið á eas@eas.is. Reynsla eins er hvatning fyrir aðra. Þessa dagana eru mörg okkar að ganga í gegnum töluverðar breytingar á lífsstíl og getur skipt sköpum að heyra hvernig aðrir takast á við sínar áskoranir. Við gætum fyllsta trúnaðar og virðum óskir um nafnleynd. Við hlökkum til að heyra frá ykkur og hér er hægt að lesa innsend bréf hér. EAS gengið – með þér alla leið.
|